Um okkur
Rafbraut var stofnað árið 1974 og hóf strax við stofnun að þjónusta heimilistæki. Núverandi eigendur Rafbrautar komu að rekstri fyrirtækisins árið 1999 og í dag þjónustar það marga af stærstu innflytjendum heimilistækja á landinu.
Hjá Rafbraut starfa 7 einstaklingar, bæði rafvirkjar og rafeindavirkjar, sem allir hafa margra ára reynslu af viðgerðum og þekkingu á heimilistækjum.
Dótturfyrirtæki Rafbrautar, R.R. Varahlutir, flytur inn varahluti í flestar tegundir stórra heimilistækja svo sem Whirlpool, Indesit, Ariston, Hot Point, Vestfrost, Beko, Candy og Bauknecht.
Rafbraut er staðsett að Dalvegi 16b í Kópavogi og hefur verið þar síðan árið 2001. Opnunartímar okkar eru frá kl. 9-12 og 13-17 mánudaga til fimmtudaga. Á föstudögum er opið frá 9-12 og 13-16